Flutningur

Enn og aftur er maður að flytja sig um set, jú ég gafst upp á útlenskunni og er kominn hingað og líður bara bærilega með það. Ég meir að segja gerðist það töff að setja inn könnun sem ég skora á alla til að taka þátt í.
Ekkert vera að skrifa í þessa gestabók þarna því ég mun ábyggilega ekkert vera að skoða hana en ég vill að þið kommentið meira á mig, já þú, láttu heyra í þér og hættu að pískra útí horni einsog froskspungur.

Ég hélst ekki þurr þessa helgina einsog ég ætlaði mér og skellti mér aðeins í bæinn á laugardagskvöldið, kíkti á Sigga og Halla sem voru í góðu geymi á vegamótum. Siggi hefur ekki verið útá lífinu síðan fyrir myntbreytingu ( enda kominn í feðrahlutverkið )  þannig það var gaman að sjá kauða lyfta sér upp og hrissta á sér rassinn.
Af Vegamótum var farið á hinn alræmda bar Prikið þar sem ég hitti Karen systu og fleirri skemmtileg andlit, ágætistjútt þar á ferð og endaði bæjarferðin hjá austur-evrópsku vinum mínum hjá Devitos.
25. apríl 2006 klukkan 07:21
Baldur Jón Kristjánsson
Almennt

Skrifa athugasemd

Ađalvalmynd

Leit

Auglýsing

Gagnasafn

Könnun

Í sumar ćtla ég svo ađ...