25apríl

Flutningur

Enn og aftur er maður að flytja sig um set, jú ég gafst upp á útlenskunni og er kominn hingað og líður bara bærilega með það. Ég meir að segja gerðist það töff að setja inn könnun sem ég skora á alla til að taka þátt í.
Ekkert vera að skrifa í þessa gestabók þarna því ég mun ábyggilega ekkert vera að skoða hana en ég vill að þið kommentið meira á mig, já þú, láttu heyra í þér og hættu að pískra útí horni einsog froskspungur.

Ég hélst ekki þurr þessa helgina einsog ég ætlaði mér og skellti mér aðeins í bæinn á laugardagskvöldið, kíkti á Sigga og Halla sem voru í góðu geymi á vegamótum. Siggi hefur ekki verið útá lífinu síðan fyrir myntbreytingu ( enda kominn í feðrahlutverkið )  þannig það var gaman að sjá kauða lyfta sér upp og hrissta á sér rassinn.
Af Vegamótum var farið á hinn alræmda bar Prikið þar sem ég hitti Karen systu og fleirri skemmtileg andlit, ágætistjútt þar á ferð og endaði bæjarferðin hjá austur-evrópsku vinum mínum hjá Devitos.
25. apríl 2006 klukkan 07:21
Baldur Jón Kristjánsson
Almennt
1 athugasemd
24apríl

Roni Size

jæja.. það er brjálað að gera í skemmtanalífinu þessa dagana, búin að vera í páskafrí frá skólanum og auðvitað er tíminn vel nýttur til mjöðdrykkju og almennra skrípaleikja.
Haldið verður nú áfram að skemmta sér, og nú til að fagna því að "sumarið" er að koma og verður það gert með því að fara á Roni Size í nasa í kvöld, sá hann á Roskilde á sínum tíma ( 2000 ) og var það "insane in the cranehouse" einsog kaninn myndi orða það og alveg tilefni að kíkja aftur.

Mér var bent á að kíkja á þessa myspace geðveiki sem er víst að tröllríða öllu þessa dagana, ég skil ekki alveg hvað er svona "röff töff, mega stöff" við þessa síðu, jú kannski fyrir hljómsveitir sem vilja koma tónlistinni sinni á framfæri eða eitthvað slíkt en annars finnst mér þetta bara kúkur.

Svo strákar, mig langar að við förum að skipuleggja "íþróttaglensið" sem við vorum búnir að tala um, væri kjörið að setjat niður hjá mér eða Jóhannes og ræða þetta betur... eða eru ekki allir GAME ennþá?...
24. apríl 2006 klukkan 21:59
Baldur Jón Kristjánsson
Engin athugasemd

Ađalvalmynd

Leit

Auglýsing

Gagnasafn

Könnun

Í sumar ćtla ég svo ađ...